Ég hef starfað við einkaþjálfun síðan 1999 og hef ég síðustu ár lagt mikla áherslu á afreksíþróttafólk hérlendis og einnig erlendis. Undanfarin ár hef ég einnig lagt áherslu á hugarfarslega markþjálfun og hef ég þannig notað NLP tækni til að hjálpa fólki að búa sér til betri aðstæður til að ná árangri.
Sjálfur hef ég æft og keppt í bardagaíþróttum og hefur aðal áherslan verið á Karate, en í íþróttinni hef ég orðið Íslandsmeistari mörgum sinnum og einnig unnið til verðlauna á fjölda móta á erlendri grundu. Með skemmtilegri verkefnum undanfarin ár verð ég að nefna æfingakerfi sem ég hannaði fyrir handknattleik og knattspyrnumarkmenn en þau hafa verið að gefa mjög góða raun og eru í sífelldri þróun. Ég tók einkaþjálfarapróf 1999 og Master Practitioner próf í NLP 2008. Mér þykir mikilvægt að vera í stöðugri endurskoðun varðandi aðferðafræði og árangur og þannig sjá hlutina í nýju ljósi.
Ingólfur Snorrason
